Sjáðu hvernig Kara vinnur með þér
Sýningin endurtekur sjálfkrafa dæmi um beiðni → vinnslu → niðurstöðu.
Þrjú skref. Engar sérstakar skipanir.
Opnaðu Köru
Smelltu á græna Kara hnappinn. Ef þú ert þegar á vinnusvæði fær Kara samhengi frá þeirri síðu.
Segðu hvað þú þarft
Skrifaðu eða talaðu. Notaðu nöfn, tímabil, upphæðir eða verkefni þegar það hjálpar Köru að skilja beiðnina.
Yfirfarðu niðurstöðuna
Kara sýnir svar, drög eða næstu aðgerð. Yfirfarðu gögnin og staðfestu þegar allt er rétt.
Dæmi sem þú getur notað strax
„Hvaða sölureikningar eru enn ógreiddir?“
„Skráðu Jón 8 klst. á K16 alla virka daga 1.–15. september.“
„Farðu yfir launavinnsluna og segðu mér hvað þarf að athuga.“
„Hvað vantar áður en ég get lokað mánuðinum?“
„Stofnaðu drög að nýjum starfsmanni út frá þessum upplýsingum.“
„Útskýrðu þessa villu á mannamáli og segðu mér næsta skref.“
Kara getur undirbúið og aðstoðað við aðgerðir. Yfirfarðu alltaf mikilvægar upplýsingar, sérstaklega upphæðir, dagsetningar og það sem á að vista eða bóka.


